Kolbeinn Þórðarson skoraði fyrsta mark Lommel þegar liðið gerði jafntefli gegn Lierse á útivelli í belgísku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.
Leiknum lauk með 2:2-jafntefli en Kolbeinn kom Lommel yfir strax á 6. mínútu. Kolbeinn var í byrjunarliði Lommel en var skipt af velli á 77. mínútu.
Þetta var hans annað mark í belgísku B-deildinni á tímabilinu en hann hefur komið við sögu í níu leikjum með Lommel á leiktíðinni.
Lommel er með 15 stig í sjötta sæti deildarinnar en átta lið leika í belgísku B-deildinni.