Enski knattspyrnumaðurinn Jude Bellingham hefur verið kærður til lögreglu fyrir ummæli sín í viðtali eftir leik Dortmund og Bayern München í toppslag þýsku 1. deildarinnar í gærkvöldi.
Dortmund vildi tvær vítaspyrnur í leiknum en fékk ekki á meðan sigurmark Bayern kom úr vítaspyrnu. Bellingham sagði valið á dómaranum fyrir leikinn furðulegt, þar sem Zwayer hafi áður verið bendlaður við hagræðingu úrslita í þýsku B-deildinni.
„Það voru margar skrítnar ákvarðanir í þessum leik, en hverju áttu von á þegar þú gefur dómara sem hefur hagrætt úrslitum áður stærsta leikinn í Þýskalandi?“ sagði Bellingham pirraður í viðtali við Viaplay eftir leik.
Bild greinir frá því að Marco Haase, formaður dómarasamtaka Þýskalands, hafi kært Bellingham til lögreglu fyrir ummælin, en hann sakar enska miðjumanninum um meiðyrði sem eru til þess fallin að skaða starfsferil dómarans.