Guðmundur Þórarinsson verður væntanlega fyrstur Íslendinga til að leika úrslitaleik um bandaríska meistaratitilinn í knattspyrnu um næstu helgi.
Lið hans, New York City, er komið í úrslitaleikinn í fyrsta skipti eftir sigur á Philadelphia Union, 2:1, á útivelli í gær þar sem Guðmundur lagði upp sigurmarkið rétt fyrir leikslok.
Eitt Íslendingalið hefur áður komist í úrslitaleik MLS-deildarinnar, Columbus Crew árið 2015. Kristinn Steindórsson var þá leikmaður Columbus en hann missti af úrslitakeppninni vegna meiðsla og lið hans, sem er ríkjandi meistari frá árinu 2020, tapaði einmitt fyrir Portland Timbers í úrslitaleiknum.
Greinin í heild sinni er í Morgunblaðinu í dag