Aron Einar Gunnarsson skoraði fyrir Al-Arabi gegn Qatar SC í deildabikarnum í knattspyrnu í Katar í dag en það dugði liðinu ekki til að komast áfram í keppninni.
Aron skoraði fyrsta mark leiksins strax á 4. mínútu en hann lék aðeins fyrri hálfleikinn í dag. Qatar SC vann leikinn 3:2 og þar með endaði Al-Arabi í fjórða sæti í sínum riðli og komst ekki í undanúrslit keppninnar en hefði náð þangað með sigri.