Barcelona er úr leik í Meistaradeild Evrópu í fótbolta eftir 0:3-tap á útivelli gegn Bayern München í lokaumferð E-riðils í kvöld. Benfica vann 2:0-heimasigur á Dynamo Kíev og tók annað sætið af Barcelona og farseðilinn í 16-liða úrslit.
Thomas Müller kom Bayern yfir á 34. mínútu og Leroy Sané sá til þess að staðan í hálfleik var 2:0. Bayern var áfram sterkari aðilinn í seinni hálfleik og Jamal Musiala bætti við þriðja markinu á 62. mínútu.
Í Portúgal skoruðu Roman Yaremchuk og Gilberto mörk Benfica í fyrri hálfleik gegn Dynamo Kíev, en ekkert var skorað í seinni hálfleik. Bayern endar í toppsæti riðilsins með 18 stig, tíu stigum meira en Benfica sem endar með stigi meira en Barcelona, sem fer í Evrópudeildina.
Í G-riðli gátu öll fjögur liðin farið áfram en að lokum voru það Frakklandsmeistarar Lille og Austurríkismeistararnir í RB Salzburg sem fóru áfram.
Burak Yilmaz kom Lille yfir á 11. mínútu á útivelli gegn Wolfsburg og kanadíski landsliðsmaðurinn Jonathan David bætti við marki á 72. mínútu. Frönsku meistararnir voru ekki hættir því Angel Gomes bætti við þriðja markinu á 77. mínútu. Renato Steffen minnkaði muninn á 89. mínútu og þar við sat.
Noah Okafor skoraði sigurmark Salzburg gegn Sevilla á 50. mínútu. Sevilla endar í þriðja sæti og fer í Evrópudeildina.