Nú þegar Breiðablik og Real Madríd leika í snjókomu á Kópavogsvellinum hefur leik Atalanta og Villareal í Meistaradeild Evrópu karla í knattspyrnu verið frestað vegna snjókomu.
Snjó kyngir niður í Bergamo á Ítalíu og var fyrst brugðið á það ráð að fresta leiknum um tuttugu mínútur en hann átti að hefjast klukkan 20.
Þessi lið eru í baráttu um að annað sætið í F-riðlinum en Manchester United er þegar komið áfram í útsláttarkeppnina.
Ekki liggur fyrir tímasetning en fyrir liggur að reynt verður að spila á morgun en þá er hvort sem er leikdagur í Evrópudeildinni.