París hefur ekki fengið á sig mark

Amanda Ilestedt á æfingu á Kópavogsvelli en hún skoraði í …
Amanda Ilestedt á æfingu á Kópavogsvelli en hún skoraði í kvöld fyrir París. mbl.is/Unnur Karen

París Saint-Germain verður með fullt hús stiga í B-riðli Meistaradeildar kvenna í knattspyrnu þegar liðið tekur á móti Breiðabliki í París síðar í desember. 

París burstaði OSC Metal­ist Kharkiv í Úkraínu í kvöld 6:0 og liðið hefur unnið fyrstu fimm leikina og ekki enn fengið á sig mark. 

París og Breiðablik eiga eftir að mætast í síðustu umferð riðlakeppninnar en Breiðablikur tekur í kvöld á móti Real Madríd og verður leikurinn í beinni textalýsingu hér á mbl.is. 

Estelle Cascarino fékk rauða spjaldið í leiknum og verður því í leikbanni gegn Breiðabliki. 

Brottvísunin breytti hins vegar engu um úrslitin því París var 5:0 yfir að loknum fyrri hálfleik. Ramona Bachmann skoraði tvívegis og þær Jordyn Huitema, Sandy Baltimore, Laurina Fazer og Amanda Ilestedt sitt markið hver. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert