Hákon í aðalhlutverki í Evrópuleik á Parken

Hákon Arnar Haraldsson gerði það gott með FC Köbenhavn í …
Hákon Arnar Haraldsson gerði það gott með FC Köbenhavn í kvöld. Ljósmynd/FCK

Hinn átján ára gamli Hákon Arnar Haraldsson frá Akranesi átti stórleik með FC Köbenhavn í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í kvöld þegar liðið tók á móti Slovan Bratislava á Parken í Kaupmannahöfn.

Hákon og Ísak Bergmann Jóhannesson, jafnaldri hans af Skaganum, voru báðir í byrjunarliði danska liðsins. Hákon lagði upp mark fyrir Jonas Wind á 30. mínútu með frábærri sendingu og annað fyrir Rasmus Hojlund á 53. mínútu, 2:0, sem urðu lokatölurnar.

Hákoni var síðan skipt af velli á 71. mínútu en Ísak Bergmann lék allan leikinn með danska liðinu sem hafði þegar tryggt sér sigur í F-riðli keppninnar og lauk honum með 15 stig af 18 mögulegum. FCK fer þar með beint í sextán liða úrslit keppninnar sem eru leikin í mars.

PAOK frá Grikklandi, lið Sverris Inga Ingasonar, varð í öðru sæti riðilsins eftir 2:0 sigur á Lincoln Red Imps frá Gíbraltar en Sverrir var ekki í hópnum í kvöld. PAOK fékk 11 stig og fer í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar í febrúar.

Auk FC Köbenhavn urðu Feyenoord, Rennes og Basel sigurvegarar í þeim riðlum sem var að ljúka í Sambandsdeildinni og fara beint í 16-liða úrslit. Slavia Prag og Qarabag eru komin áfram ásamt PAOK í 1. umferðina en eftir er að útkljá hvort Tottenham eða Vitesse kemst þangað.

Í Evrópudeildinni var Elías Rafn Ólafsson varamarkvörður hjá Midtjylland sem gerði markalaust jafntefli við Ludogorets í Búlgaríu. Midtjylland endaði þar með í þriðja sæti F-riðils með 9 stig og fer í fyrstu umferð útsláttarkeppni Sambandsdeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert