Rifti samningi sínum í Svíþjóð

Óskar Sverrisson í leik með Häcken.
Óskar Sverrisson í leik með Häcken. Ljósmynd/Häcken

Knattspyrnumaðurinn Óskar Tor Sverrisson hefur rift samningi sínum við sænska úrvalsdeildarfélagið Häcken. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í dag.

Óskar, sem er 29 ára gamall bakvörður, gekk til liðs við Häcken frá Mjällby árið 2019 en hann hefur einnig leikið með Kvik Halden í Noregi, Lund, Dalkurd og Landskrona í Svíþjóð þar sem hann er fæddur.

Alls lék hann 67 leiki fyrir Häcken þar sem hann skoraði eitt mark og lagði upp önnur fjögur fyrir liðsfélaga sína.

„Ég er ánægður með tíma minn hjá Häcken og ég kynntist mörgu frábæru fólki hérna,“ sagði Óskar í samtali við heimasíðu félagsins.

„Hlutirnir hafa hins vegar ekki æxlast eins og ég hefði viljað og mér fannst kominn tími til þess að prófa aðra hluti,“ bætti bakvörðurinn við.

Óskar á að baki einn A-landsleik fyrir Ísland, gegn El Salvador í vináttulandsleik í Kaliforníu í janúar 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert