Villarreal náði síðasta sætinu

Arnaut Danjuma, til hægri, skorar fyrra mark sitt fyrir Villarreal …
Arnaut Danjuma, til hægri, skorar fyrra mark sitt fyrir Villarreal í 3:2 sigrinum í kvöld. AFP

Villarreal frá Spáni varð í kvöld sextánda og síðasta liðið til að komast í sextán liða úrslit Meistaradeildar karla í fótbolta með því að vinna góðan útisigur gegn Atalanta á Ítalíu, 3:2.

Leikur liðanna átti að fara fram í Bergamo í gærkvöld en var þá frestað vegna snjókomu. Villarreal nægði jafntefli og náði undirtökunum strax á 3. mínútu þegar Arnaut Danjuma skoraði. 

Étienne Capoué bætti við marki á 42. mínútu og þegar Danjuma skoraði sitt annað mark á 51. mínútu var staðan orðin 3:0 fyrir Villarreal.

Ítalirnir gáfust ekki upp og þeir Ruslan Malinovsky og Duvan Zapata skoruðu á 71. og 80. mínútu, 3:2. Atalanta hefði þó þurft tvö mörk í viðbót til að fara áfram og Villarreal hélt fengnum hlut.

Manchester United vann F-riðilinn með 11  stig, Villarreal fékk 10 stig, Atalanta 6 og Young Boys frá Sviss fékk 5 stig.

United og Villarreal fara í 16-liða úrslit, Atalanta fer yfir í 1. umferð útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar en Young Boys hefur lokið keppni í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert