Mistök voru gerð í dag þegar dregið var til sextán liða úrslitanna í Meistaradeild karla í fótbolta og mögulegt er að þar með þurfi að draga upp á nýtt.
Þegar Villarreal hafði verið dregið sem fyrra liðið í annarri viðureign í drættinum, var Manchester United dregið sem mótherji. Það var hinsvegar ekki mögulegt því liðin voru saman í riðli.
Þar með voru nýir andstæðingar dregnir fyrir Villarreal og þá kom Manchester City upp úr skálinni.
Svo virðist sem kúlan með nafni Manchester United hafi ekki verið komin á réttan stað þegar næsti leikur var dreginn, þar sem Atlético Madrid dróst gegn Bayern München. Manchester United átti að vera einn af mögulegum mótherjum Atlético.
Atlético hefur haft samband við UEFA út af þessu og samkvæmt fréttum er UEFA að fara yfir málið og kanna hvort draga þurfi aftur.