Knattspyrnuþjálfarinn Milos Milojevic hefur ráðinn þjálfari sænska meistaraliðsins Malmö. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni núna rétt í þessu.
Milos tekur við liðinu af Jon Dahl Tomasson, fyrrverandi landsliðsmanni Dana, sem lét af störfum eftir tímabilið eftir tvö ár hjá félaginu en liðið varð sænskur meistari tvö tímabil í röð undir stjórn Tomasson.
Milos, sem er 39 ára gamall Serbi, var búsettur á Íslandi í tólf ár og þjálfaði bæði Víking í Reykjavík og Breiðablik á árunum 2015 til 2017 en hefur starfað síðan í Svíþjóð og Serbíu.
Hann tók við Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni síðasta sumar en var sagt upp störfum í desember eftir að hafa farið í viðræður um að taka við þjálfun norska liðsins Rosenborg.
Malmö er sigursælasta lið Svíþjóðar en liðið hefur í 22. skipti orðið Svíþjóðarmeistari og þá hefur félagið fjórtán sinnum orðið bikarmeistari.
Fréttin hefur verður uppfærð.