Leonardo Bonucci, varnarmaður Juventus og ítölsku Evrópumeistaranna í knattspyrnu, er í slæmum málum eftir atvik eftir leik liðsins gegn Inter Mílanó í gærkvöld.
Liðin mættust í ítölsku meistarakeppninni og í uppbótartíma framlengingar þegar staðan var 1:1 stóð til að skipta Bonucci inn á sem varamanni svo hann gæti tekið þátt í vítaspyrnukeppninni.
Skiptingin náði ekki að fara fram og Alexis Sánchez skoraði sigumark Inter í blálokin.
Cristiano Mozzilo, stjórnarmaður Inter, var niðri við hliðarlínuna og fagnaði ákaft. Bonucci fokreiddist, rauk að honum, og samkvæmt Il Tempo sagði hann við Mozzilo: „Hættu að fagna svona beint í andlitið á mér, hver fjandinn gengur að þér. Ég skal drepa þig."
Viðbúið er að Bonucci, sem er 34 ára gamall og hefur leikið 114 landsleiki fyrir Ítalíu, fái refsingu fyrir framkomuna.
Uppfært:
Bonucci hefur verið sektaður um 10 þúsund evrur fyrir framkomuna en sleppur við leikbann.