Sú staða gæti komið upp að danska knattspyrnuliðið Midtjylland væri með tvo íslenska markverði í sínum röðum því samkvæmt Ekstra Bladet hefur félagið gert tilboð í Hákon Rafn Valdimarsson markvörð hjá Elfsborg í Svíþjóð.
Landsliðsmarkvörðurinn ungi Elías Rafn Ólafsson er orðinn aðalmarkvörður Midtjylland eftir að keppinautur hans Jonas Lössl var lánaður til Brentford á Englandi.
Hákon Rafn, sem lék á miðvikudag sinn fyrsta A-landsleik þegar Ísland mætti Úganda, kom til Elfsborg síðasta sumar frá Gróttu og er varamarkvörður sænska liðsins. Hann lék fimm leiki með liðinu í seinni hluta sænsku úrvalsdeildarinnar.