Guðmundur á leið til Álaborgar

Guðmundur Þórarinsson er búinn að finna sér nýtt lið.
Guðmundur Þórarinsson er búinn að finna sér nýtt lið. Kristinn Magnússon

Guðmundur Þórarinsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er á leiðinni til AaB frá Álaborg, sem leikur í dönsku úrvalsdeildinni.

Ekstra Bladet greinir frá og þar kemur fram að Guðmundur muni skrifa undir samning sem gildi til sumarsins 2023.

Guðmundur kemur á frjálsri sölu eftir að hafa yfirgefið Bandaríkjameistara New York City undir lok síðasta árs.

Auk þess að leika í Bandaríkjunum hefur Guðmundur spilað með Sarpsborg og Rosenborg í Noregi, Norrköping í Svíþjóð og Nordsjælland í Danmörku, þar sem hann lék undir stjórn Ólafs Kristjánssonar.

Hann er uppalinn hjá Selfossi og lék einnig með ÍBV hér á landi. Guðmundur á þá 12 A-landsleiki að baki.

AaB er um þessar mundir í fjórða sæti dönsku úrvalsdeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert