Hlín skoraði þrennu í miðnætursólinni

Hlín Eiríksdóttir í leik með Val. Hún leikur nú með …
Hlín Eiríksdóttir í leik með Val. Hún leikur nú með Piteå. mbl.is/Íris

Hlín Eiríksdóttir fór á kostum í kvöld og skoraði öll þrjú mörk Piteå þegar liðið vann Djurgárden, 3:0, í miðnæturleik í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Eins og Hlín sagði frá í viðtali við mbl.is í gærkvöld er hefð fyrir því í Svíþjóð að spila einn leik í Norður-Svíþjóð um þetta leyti en hann hófst klukkan 23 í kvöld að sænskum tíma og lauk laust fyrir klukkan eitt að nóttu.

Hlín kunni vel við sig í miðnætursólinni og skoraði þrennu á aðeins 18 mínútum í síðari hálfleiknum en hún skoraði mörkin á 53., 68. og 71. mínútu leiksins.

Hlín hefur þar með skorað átta mörk í 14 leikjum Piteå í deildinni í ár og er orðin þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar. Piteå fór uppfyrir Djurgården með sigrinum og í áttunda sæti af fjórtán liðum með 20 stig.

Uppfært:
Fyrsta mark Piteá í leiknum hefur nú verið skráð sem sjálfsmark þannig að Hlín telst hafa skorað tvö mörk en ekki þrjú.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert