Heimir hættir hjá Val

Heimir Guðjónsson í leiki Val gegn Fram.
Heimir Guðjónsson í leiki Val gegn Fram. mbl.is/Kristinn Steinn

Heimir Guðjónsson lætur af störfum sem þjálfari karlaliðs Vals í knattspyrnu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Val á Facebook. Heimir hefur verið með liðið frá 2020 og gerði liðið að Íslandsmeisturum á fyrsta tímabilinu með liðið.

Valur situr núna í 5. sæti deildarinnar með 20 stig en í gær tapaði liðið gegn ÍBV sem er í neðsta sæti og var þetta fyrsti sigur ÍBV í deildinni á þessari leiktíð en leikurinn fór 3:2 fyrir ÍBV. 

Þetta var annar leikur í röð þar sem Valsmenn fá þrjú mörk á sig en þeir töpuðu 0:3 fyrir Keflavík í síðustu umferð. Þeir fengu einnig þrjú mörk á sig þegar þeir töpuðu 2:3 gegn Fram í deildinni en stærsta tap þeirra á leiktíðinni var 2:6 tap þeirra gegn Breiðabliki í bikarkeppninni.

Næsti leikur Vals er gegn KR þann 25. júlí, en Valsmenn hafa ekki gefið út hver taki við liðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert