Viðar skoraði í fyrsta leik

Viðar Örn Kjartansson fagnar marki sínu í kvöld.
Viðar Örn Kjartansson fagnar marki sínu í kvöld. Ljósmynd/Atromitos

Atromitos hafði betur gegn OFI Krít í fyrstu umferð grísku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld, 3:1.

Selfyssingurinn Viðar Örn Kjartansson kom inn á sem varamaður hjá Atromitos á 58. mínútu og stundarfjórðungi síðar var hann búinn að koma liðinu í 3:1. Viðar kom til Atromitos frá Vålerenga í Noregi á dögunum.

Sveitungi hans Guðmundur Þórarinsson kom inn á hjá Krít á 70 mínútu í sínum fyrsta leik með liðinu, en Guðmundur gekk í raðir félagsins frá AaB í Danmörku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert