Annar stjóri rekinn eftir 0:9-tap

Jack Ross.
Jack Ross. Ljósmynd/@SunderlandAFC

Skoska úrvalsdeildarfélagið Dundee United hefur leyst Jack Ross undan störfum sínum í kjölfar 0:9-taps á heimavelli gegn Skotlandsmeisturum Celtic um liðna helgi.

Í morgun var einnig tilkynnt að Scott Parker hafi verið rekinn sem knattspyrnustjóri Bournemouth eftir að liðið tapaði 0:9 fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Stórtap Dundee í skosku úrvalsdeildinni um helgina var fimmta tap Dundee í röð.

Ross tókst einungis að stýra liðinu um tíu vikna skeið í sjö leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert