Hlín skoraði sitt tíunda mark

Elísa Viðarsdóttir og Hlín Eiríksdóttir fyrir leik Íslands og Portúgals …
Elísa Viðarsdóttir og Hlín Eiríksdóttir fyrir leik Íslands og Portúgals fyrr í mánuðinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hlín Eiríksdóttir hefur leikið afar vel fyrir Piteå í sænsku úrvalsdeildinni á knattspyrnu kvenna á tímabilinu og skoraði í dag sitt tíunda deildarmark í sínum 25. leik.

Illu heilli dugði mark hennar þó ekki til í 1:2-tapi fyrir Vittsjö.

Hlín skoraði á áttundu mínútu uppbótartíma og minnkaði þar með muninn en lengra komst Piteå ekki.

Liðið er í sjöunda sæti þegar ein umferð er óleikin.

Keppni lokið í Noregi

Lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar fór þá einnig fram í hádeginu.

Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan leikinn fyrir Brann og Ingibjörg Sigurðardóttir gerði slíkt hið sama fyrir Vålerenga þegar liðin skildu jöfn, 1:1. Bæði lið fengu rauð spjöld í síðari hálfleik.

Brann var þegar búið að tryggja sér norska meistaratitilinn.

Rosenborg hafði þá betur gegn Stabæk, 2:1, þar sem Selma Sól Magnúsdóttir lék allan leikinn fyrir Rosenborg.

Hin íslensk ættaða Iris Omarsdottir skoraði mark Stabæk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert