Hlín Eiríksdóttir yfirgefur Piteå í sænsku úrvalsdeildinni en hún hefur leikið með liðinu síðan í janúar 2021. Þetta staðfestir félagið í tilkynningu á samfélagsmiðlum.
Hlín var talsvert frá vegna meiðsla á fyrra keppnistímabili sínu með liðinu en hún skoraði tíu mörk í 26 leikjum í deildinni á nýliðnu keppnistímabili og varð markahæsti leikmaður Piteå og sú sjötta markahæsta í sænsku úrvalsdeildinni á þessu ári.
Hlín var ekki með íslenska kvennalandsliðinu á EM á Englandi í sumar en hún var í landsliðshópnum í haust. Fróðlegt verður að sjá hvar hún mun spila á næstu leiktíð.