Real kaupir 16 ára undrabarn

Endrick með fjölskyldu sinni.
Endrick með fjölskyldu sinni. Ljósmynd/Palmeiras

Spænki knattspyrnurisinn Real Madrid hefur fest kaup á hinum 16 ára gamla Brasilíumanni Endrick frá Palmeiras. Hann gengur í raðir Real eftir tvö ár, þar sem reglur FIFA kveða að leikmenn verða að ná 18 ára aldri til að hafa félagaskipti á milli landa.

Endrick er bæði yngsti leikmaður Palmeiras frá upphafi og yngsti markaskorari félagsins. Hann er búinn að skora þrjú mörk í sjö leikjum í brasilísku A-deildinni á leiktíðinni. Þá hefur hann leikið með yngri landsliðum þjóðar sinnar.

Real greiðir Palmeiras 35 milljónir evra fyrir leikmanninn, en sú upphæð getur hækkað um 25 milljónir evra vegna mögulegra bónusgreiðslna. Samningur leikmannsins gildir til 2027, með möguleika á framlengingu til ársins 2030.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert