AC Milan - Tottenham, staðan er 1:0

Brahim Díaz skorar sigurmarkið.
Brahim Díaz skorar sigurmarkið. AFP/Marco Bertorello

AC Milan hafði betur gegn Tottenham á heimavelli, 1:0, í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld.

Milan byrjaði með látum, því Brahim Díaz skoraði fyrsta markið strax á sjöundu mínútu er hann skallaði boltann í netið af stuttu færi eftir að Fraiser Forster í marki Tottenham hafði í tvígang varið vel.

Tottenham gekk illa að skapa sér færi það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og í raun það sem eftir lifði leiks. Ciprian Tătărușanu hafði lítið að gera í markinu hjá Milan, á meðan heimamenn virtust hafa takmarkaðan áhuga á að bæta við marki og urðu mörkin því ekki fleiri.

Þýskalandsmeistarar Bayern München eru í góðum málum í einvígi sínu gegn Frakklandsmeisturum París SG eftir 1:0-útisigur í París í kvöld.

Kingsley Coman skoraði sigurmarkið á 53. mínútu. Sigurinn var verðskuldaður og gat Parísarliðið helst þakkað Gianluigi Donnarumma í markinu að mörkin yrðu ekki fleiri.

Benjamin Pavard verður ekki með í seinni leiknum, því hann fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt í uppbótartíma, fyrir brot á Lionel Messi.  

Leikmenn Bayern München fagna sigurmarki sínu.
Leikmenn Bayern München fagna sigurmarki sínu. AFP/Anne-Christine Poujoulat
AC Milan 1:0 Tottenham opna loka
90. mín. Rafael Leão (AC Milan) fer af velli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert