Putellas valin best

Alexia Putellas með verðlaunin í kvöld.
Alexia Putellas með verðlaunin í kvöld. AFP/Franck Fife

Alexia Putellas var í kvöld valin besti leikmaður ársins af Alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA. Er þetta í annað sinn í röð sem Putellas er valin best.

Putellas, sem er 29 ára, hefur leikið gríðarlega vel með Barcelona að undanförnu og þá er hún lykilmaður í landsliði Spánar. Varð hún Spánarmeistari með liðinu á síðustu leiktíð og Evrópumeistari árið 2021.

Hún hefur ekkert leikið á yfirstandandi leiktíð vegna meiðsla, en skoraði 18 mörk í 26 leikjum í spænsku 1. deildinni á síðustu leiktíð og fjögur mörk í sjö landsleikjum á síðasta ári.

Hin bandaríska Alex Morgan og Englendingurinn Beth Mead voru einnig tilnefndar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert