Erik Hamrén hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara danska knattspyrnufélagsins AaB eftir hálft ár í starfi.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í morgun en gengi liðsins hefur verið langt undir væntingum á tímabilinu.
AaB situr sem stendur í tólfta og neðsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 15 stig, einu stigi minna en Lyngby.
Hamrén, sem er 65 ára gamall, tók við liðinu síðasta haust en í febrúar bárust fréttir af því að mikil óánægja ríkti á meðal leikmanna AaB með störf Hamréns.
Hamrén stýrði AaB á árunum 2004 til 2008 og gerði liðið meðal annars að Danmerkurmeistara árið 2008.
Sænski þjálfarinn er Íslendingum að góðu kunnur en hann stýrði íslenska karlalandsliðinu á árunum 2018-2020.