Þýska stórveldið Bayern München er búið að staðfesta brottrekstur Julian Nagelsmann og komu Thomas Tuchel sem nýs knattspyrnustjóra félagsins.
Í tilkynningu sem félagið birti fyrir stuttur segir að ásamt Nagelsmann hafi aðstoðarmenn hans, Dino Toppmöller, Benjamin Glück og Xavier Zembrod einnig verið látnir fara.
Tuchel kemur í stað Nagelsmann og er með samning hjá félaginu til sumarsins 2025. Fyrsta æfing Tuchels hjá Bayern verður á mánudaginn kemur.
Tuchel stýrði síðast Chelsea og vann Meistaradeildina með félaginu árið 2021. Hann var hinsvegar rekinn frá Lundúnafélaginu í september á síðasta ári vegna slæmar samskipta hans og Todd Boehly, eiganda Chelsea.
Ásamt Chelsea hefur Tuchel einnig stýrt París SG, Dortmund, Mainz og B-liði Augsburg.
Bayern er sem stendur í öðru sæti þýsku 1. deildarinnar með 52 stig, stigi frá Dortmund sem er á toppnum. Ásamt því er Bayern komið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar og mætir þar Manchester City í apríl.