Danir eru öskuillir út í karlalandslið sitt í fótbolta eftir útitap gegn Kasakstan, 2:3, í undankeppni EM í dag.
Danir komust í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik. Þannig hélst staðan allt fram á 73. mínútu þegar Baktiyar Zaynutdinov minnkaði muninn fyrir heimamenn.
Lokamínúturnar voru svo ótrúlegar en á 86. mínútu jafnaði Askhat Tagybergen metin fyrir Kasakstan og á 89. mínútu skoraði Abat Aimbetov sigurmarkið og tryggði heimamönnum ótrúlegan sigur.
Danska blaðið Tipsbladet sparaði ekki stóru orðin eftir leik og sagði leikmönnum liðsins að skammast sín. Ásamt því gaf blaðið tveimur leikmönnum núll af sex í einkunn, þeim Christian Nörgaard og Pierre-Emile Höjbjerg.
„Þetta er vandræðalegt og niðurlægjandi,“ segir Ekstrabladet í umfjöllun sinni, „eitt risastórt fíaskó.“
Það er eitthvað alvarlegt að
Danska landsliðið var harðlega gagnrýnt eftir heimsmeistaramótið í Katar þar sem liðið endaði neðst í riðli með Frökkum, Áströlum og Túnis.
Leikurinn í dag minnti blaðamann Tipsbladet á leikinn gegn Ástralíu, sem Danmörk tapaði 0:1, og sagði að allir slæmu straumarnir þaðan séu komnir aftur.
„Af hverju getur þetta lið ekki stjórnað leikjum lengur? Hvernig gátuð þið látið Kasakstan yfirspila ykkur?
Það er eitthvað alvarlegt að hjá landsliðinu, þetta er viðkvæmt landslið, sem er daginn í dag langt frá því að vera öruggt með sæti á EM í Þýskalandi. Það þarf að taka góðar ákvarðanir, og aðeins góðar, fyrir leikina gegn Norður-Írlandi og Slóveníu í júní til að þetta verði leiðrétt.
Og ef það er eitthvað að sem maður hafði vonast til að liðið skildi eftir grafið í eyðumerkursandi Katar, þá er eins gott að tekist verði á því núna,“ sagði Tipsbladet að lokum í umfjöllun sinni.