Elías Már Ómarsson skoraði fyrsta mark Breda er liðið vann 4:2-heimasigur á Roda í hollensku B-deildinni í fótbolta í kvöld.
Elías skoraði fyrsta mark leiksins á 12. mínútu. Hann hefur skorað átta mörk í deildinni á leiktíðinni, öll í síðustu átta leikjum.
Liðið er í fimmta sæti deildarinnar með 56 stig og á enn veika von á að komast í umspil um sæti í efstu deild.