Mikael Andersson og samherjar hans í AGF höfðu betur gegn Nordsjælland á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, 1:0.
Íslenski landsliðsmaðurinn Mikael Anderson skoraði sigurmark AGF á 19. mínútu. Hann fór svo af velli á 88. mínútu.
AGF er í fjórða sæti deildarinnar með 43 stig, sex stigum á eftir toppliði FC Kaupmannahafnar.