Christophe Galtier, knattspyrnustjóri karlaliðs Parísar Saint-Germain, gagnrýnir stuðningsmenn liðsins sem komu saman fyrir utan heimili brasilísku stórstjörnunnar Neymars í borginni og kröfðust þess að hann yfirgæfi félagið.
„Ég ber ekki virðingu fyrir stuðningsmönnum sem sitja fyrir leikmanni, sama hvort það sé Neymar eða einhver annar.
Einkalífið verður að fá að haldast þannig. Ég veiti því alveg skilning að stuðningsmenn okkar séu reiðir og vonsviknir,“ sagði Galtier á blaðamannafundi í dag.
PSG á sigur í frönsku 1. deildinni vísan en olli miklum vonbrigðum í Meistaradeild Evrópu í enn eitt skiptið er liðið sá ekki til sólar gegn Bayern München í 16-liða úrslitum keppninnar.
„Ég get alveg skilið að þeir mótmæli hér fyrir utan skrifstofuna, á Parc des Princes eða eftir leiki, en ekki við heimili leikmanns. Samfélagið er að ganga af göflunum og við verðum að stíga varlega til jarðar,“ hélt hann áfram.