AC Milan á lífi í Meistaradeildarbaráttunni

Frakkarnir Theo Hernandez og Olivier Giroud fagna marki þess fyrrnefnda …
Frakkarnir Theo Hernandez og Olivier Giroud fagna marki þess fyrrnefnda í dag. AFP/Isabella Bonotto

AC Milan tók á móti Lazio í 34. umferð ítölsku A-deildarinnar í fótbolta í dag. Lokatölur urðu 2:0 fyrir AC Milan og var sigurinn gríðarlega mikilvægur í Meistaradeildarbaráttunni.

Eftir sigurinn er AC Milan í 4. sæti deildarinnar með 61 stig en Lazio er í 2. sæti með 64 stig og eiga bæði lið eftir að spila fjóra leiki á tímabilinu.

Það var Alsíringurinn Ismael Bennacer sem kom AC Milan 1:0 yfir á 17. mínútu með öðru marki sínu á tímabilinu.

Frakkinn Theo Hernandez skoraði síðan glæsilegt mark á 29. mínútu og kom AC Milan í 2:0. Hernandez fékk boltann á eigin vallarhelmingi, hljóp með hann upp allan völlinn áður en hann lét vaða fyrir utan teiginn og söng skot hans í fjærhorninu, óverjandi fyrir Ivan Provedel, markvörð Lazio.

AC Milan varð hinsvegar fyrir áfalli í upphafi leiks þegar Rafael Leao fór meiddur útaf eftir 11 mínútur. Það eru slæm tíðindi fyrir AC Milan því liðið leikur gegn nágrönnum sínum í Inter Milan í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn og þurfa þeir svo sannarlega á sínum besta leikmanni að halda í þeim leik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert