Albert og félagar upp í A-deild

Albert Guðmundsson í leik með Genoa gegn Inter á síðasta …
Albert Guðmundsson í leik með Genoa gegn Inter á síðasta tímabili. AFP

Genoa, lið Alberts Guðmundssonar, tryggði sæti sitt í A-deild á Ítalíu með 2:1 sigri á Ascoli í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Það var vitað fyrir leikinn í dag að Genoa nægði einn sigur í síðustu þremur leikjum tímabilsins til að tryggja sætið í A-deild á næsta tímabili.

Leikurinn fór vel af stað fyrir Genoa og hafði Mattia Bani komið boltanum í netið eftir 16 mínútur og staðan orðin 1:0 fyrir Genoa. Milan Badelj tvöfaldaði forystu heimamanna á 63. mínútu með góðu marki. Heimamenn klúðruðu víti á 66. mínútu áður en gestirnir minnkuðu muninn á 68. mínútu með marki frá Davide Marsura.

Fleiri urðu mörkin ekki og fögnuðu liðsmenn Genoa ákaft í leikslok þegar ljóst var að liðið væri komið aftur upp í deild þeirra bestu á Ítalíu.

Albert Guðmundsson byrjaði leikinn og spilaði fyrstu 82 mínúturnar.

Albert hefur verið með betri mönnum liðsins á tímabilinu en hann hefur spilað 33 leiki, skorað 9 mörk og lagt upp 4.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert