Bayern München vann afar mikilvægan 2:1 útisigur á Essen í þýsku 1. deildinni í fótbolta í dag. Eftir leikinn er Bayern með fjögurra stiga forskot á Wolfsburg sem spilar á morgun.
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Bayern München, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var ónotaður varamaður og Cecilía Rán Rúnarsdóttir var ekki í leikmannahópnum.
Bayern München komst 2:0 yfir í fyrri hálfleik með mörkum frá Leu Schuller og Linu Magull áður en Saki Kumagai fékk að líta rauða spjaldið á 59. mínútu. Einum fleiri náðu liðsmenn Essen að minnka muninn á 62. mínútu en þar var að verki Natasha Kowalski. Liðsmenn Bayern München náðu að halda út manni færri og unnu afar mikilvægan sigur.
Bayern München er í efsta sæti deildarinnar með 52 stig eftir 19 leiki en fast á hæla þeim kemur lið Wolfsburg með 48 stig eftir 18 leiki.
Wolfsburg, lið Sveindísar Jane Jónsdóttur, leikur á morgun á heimavelli við Köln og freistar þess að minnka forystu Bayern München aftur niður í eitt stig.