Fullkominn en hlutverkið ekki fyllilega skilgreint

Jude Bellingham er enn aðeins 19 ára gamall en hefur …
Jude Bellingham er enn aðeins 19 ára gamall en hefur þegar spilað 90 leiki fyrir Borussia Dortmund í þýsku 1. deildinni og 24 landsleiki fyrir England. AFP/Ina Fassbender

Borussia Dortmund gæti nýtt sér erfiðleikana hjá Bayern München og orðið þýskur meistari í knattspyrnu í fyrsta skipti frá árinu 2012.

Ástæðan er sú að liðið er með í sínum röðum áhugaverðasta leikmann deildarinnar, Jude Bellingham.

Philipp Lahm skrifar pistla um knattspyrnu fyrir Morgunblaðið og mbl.is.
Philipp Lahm skrifar pistla um knattspyrnu fyrir Morgunblaðið og mbl.is. Ljósmynd/Philippe Arlt

Phil­ipp Lahm skrif­ar þenn­an pist­il. Hann var fyr­irliði þýska landsliðsins í knatt­spyrnu þegar það varð heims­meist­ari árið 2014 og lék með Bayern München í fimmtán ár. Hann er móts­stjóri Evr­ópu­móts karla sem fram fer í Þýskalandi árið 2024. Pistl­ar hans, „Mitt sjón­ar­horn“, birt­ast reglu­lega í Morg­un­blaðinu og/​​​​​​eða mbl.is. Þeir eru skrifaðir í sam­vinnu við Oli­ver Fritsch, íþrótta­rit­stjóra þýska net­miðils­ins Zeit On-line, og birt­ast í fjöl­miðlum nokk­urra Evr­ópu­landa.

Bellingham er fullkominn miðjumaður. Hann getur einleikið, gefið góðar sendingar, skotið, og vill skora mörk. Fyrsta snerting við boltann er einstaklega góð, eins og sást best þegar hann kom liði sínu yfir, 1:0, gegn Eintracht Frankfurt. Hann er líkamlega sterkur og óhræddur, stendur af sér návígin og vinnur boltann. Hann er sterkur karakter á vellinum, sækist eftir því að fara í návígi við öfluga mótherja og tekur ábyrgð á sínar herðar í mikilvægu leikjunum, bæði með félagsliðinu og með sínu landsliði.

Hæfileikar hans sjást í hverjum einasta leik, líka þegar liðið tapaði 4:2 í München í byrjun apríl. Ég skildi ekki þá gagnrýni sem hann fékk eftir leikinn. Ef hann er ekki með, eins og þegar liðið tapaði í Leipzig í átta liða úrslitunum, vantar kraft í liðið. Dortmund getur ekki án hans verið.

Nítján ára en mjög þroskaður

Bellingham fær fólk til að dreyma því hann getur orðið að heimsklassaleikmanni. Hann er bara nítján ára en þegar orðinn mjög þroskaður. Sextán ára gamall sýndi hann sig og sannaði í ensku B-deildinni og nú er hann mjög traustur hlekkur í sínu liði á þriðja ári sínu í Þýskalandi. Gareth Southgate stólar á hann því á heimsmeistaramótinu í Katar var hann í byrjunarliði Englands í öllum leikjunum.

Frábærir leikmenn sýna hvað þeir geta þegar á unga aldri. Ég man ekki eftir neinum heimsklassaleikmanni síðustu þrjátíu árin sem var ekki þegar orðinn afgernadi leikmaður um tvítugt. Ef þú festir þig í sessi í þeim gæðaflokki þetta ungur, þá ertu búinn að leggja drögin að framtíðinni. Bellingham hefur það sem til þarf til að vera í stóru hlutverki í hvaða toppliði sem er í Evrópu næstu tíu til fimmtán árin.

Jude Bellingham er þegar orðinn lykilmaður í enska landsliðinu.
Jude Bellingham er þegar orðinn lykilmaður í enska landsliðinu. AFP/Glyn Kirk

Bellingham er búinn að sýna sig og sanna. En til þess að hann standi alveg undir væntingum þarf fleira að fylgja í kjölfarið sem fyrst. Ég sé eitt hættumerki: Hans hlutverk hefur ekki verið fyllilega skilgreint. Hann er ekki ennþá búinn að móta eigin leikstíl sem fólk kennir hann við. Það er enn ekki ljóst hversu vel hann skilur sína stöðu.

Eyðir orkunni of snemma

Bellingham tekur stundum á sig of mörg hlutverk í liði Dortmund, spilar á of stóru svæði, og er búinn með orkuna þegar mest á reynir. Þetta kemur niður á leik hans, hann þarf að vera með hlutverk sitt á hreinu þegar hann er með boltann og vera vel skipulagður þegar hann verst. Þegar liðið gerði jafnteflið í Stuttgart, 3:3, var hann til dæmis kominn í framlínuna í uppbótartímanum, þrátt fyrir að liðið væri yfir, á meðan félagar hans vörðust. Liðið fékk á sig jöfnunarmark á síðustu sekúndu.

Jude Bellingham lék 16 ára gamall heilt tímabil með Birmingham …
Jude Bellingham lék 16 ára gamall heilt tímabil með Birmingham City. AFP/Ina Fassbender

Miðverðir og framherjar eins og Erling Haaland og Karim Benzema, eru í auðveldari stöðu að þessu leyti. Hlutverk þeirra er augljósara. Bellingham er miðjumaður, og þar þarf að túlka og skilgreina hver hefur hvaða hæfileika og hvernig þeir eru nýttir. Í þessari liðsíþrótt er miðjan flóklnust. Leikmennirnir þrír sem eru númer 6, 8 og 10 þurfa að þróa með sér vinnuplan sem kemur jafnvægi á sóknarleik og varnarleik. Casemoro, Luka Modric og Toni Kroos hafa leyst þetta á fullkominn hátt í Madríd um árabil.

Þannig þekkirðu heimsklassaleikmann

Heimsklassaleikmenn þekkjast best á því að þeirra hlutverk í leiknum er að grunni til alltaf það sama. Kroos, miðjumaður Real í heilan áratug, er frábært dæmi um þetta. Sendingarnar hans eru fullkomnar, sem og boltameðferðin og yfirsýnin. Þá eru hlaupin og stoðsendingarnar hjá Kevin De Bruyne í einstökum gæðaflokki. Hann er enn að bæta sig. Það sést á því að Pep Guardiola lætur hann spila meira inn á miðjunni en hann gerði fyrir einu til tveimur árum.

Næsta skref fyrir Bellingham verður að vera að komast í þennan hóp. Til að ná sínum stærstu markmiðum þurfa allir leikmenn að fá leiðbeiningar frá góðum þjálfara sem getur tekist á við lykilatriðin: Hvað sé ég í þessum leikmanni? Hvernig getur hann styrkt liðið? Hvenær læt ég ungan leikmann fá forgang á þann eldri? Mjög reyndur maður eins og Carlo Ancelotti finnur réttu svörin. Stundum eru það líka samherjarnir sem hjálpa þér að taka síðustu skrefin í þróunarferlinum.

Jude Bellingham leikur undir stjórn Edin Terzic hjá Borussia Dortmund.
Jude Bellingham leikur undir stjórn Edin Terzic hjá Borussia Dortmund. AFP/Ina Fassbender

Verkamaðurinn í fótboltanum

Bellingham hefur í Dortmund allt sem hann þarfnast. Hann getur spilað í hverri viku í metnaðarfullu liði í sterkri deild. Þeir bera virðingu fyrir honum og þurfa á honum að halda. Og auðvitað gæti hann leikið þar áfram. Borussia er liðið sem heldur Bayern á tánum í þýsku deildinni, vinnur bikarinn af og til og leikur reglulega í Meistaradeildinni. Liðið er fulltrúi Ruhr-héraðsins. Engin furða að "Guli veggurinn", það fallega fyrirbæri í fótboltanum, kunni að meta Bellingham og leikstíl hans. Hann hefur sjálfur skilgreint sig sem verkamann í fótboltanum, enda alinn upp í Birmingham.

En til þess að Bellingham líti á Dortmund sem sitt heimili til margra ára þarf liðið að hætta að vera stoppistöð fyrir ungar stjörnur. Þegar Erling Haaland kom var ljóst að hann myndi ekki staldra lengi við. Manuel Akanji vann sig upp í ensku úrvalsdeildina með því að spila með Dortmund og hefur lært kerfisbundinn varnarleik hjá Manchester City. Bellingham hefur líka verið orðaður lengi við önnur félög.

Bundeslígan er fjárhagslega sterk, vekur athygli á heimsvísu og er freistandi stökkpallur fyrir hæfileikaríka leikmenn sem nota hana til að sýna sig fyrir stærri félög. En stórlið verða ekki til nema þau séu með stóran kjarna leikmanna sem eru lengi í fremstu röð og skapa félaginu nafn. Dortmund gerði þetta vel á árunum eftir 2008 undir stjórn Jürgens Klopps. Þeir urðu meistarar tvisvar, 2011 og 2012.

Í Þýskalandi fylgja menn ekki þessari hugsjón eftir, ekki endilega vegna þess að þeir neyðist til þess, heldur vísvitandi. Þess vegna minnkar vægi Bundeslígunnar. Það er efni í sérstakan pistil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert