Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, fór meiddur af velli í kvöld þegar lið hans, Alanyaspor, sótti heim Adana Demirspor í tyrknesku úrvalsdeildinni.
Rúnar þurfti að fara af velli eftir 35 mínútna leik þegar staðan var 1:1. Vegna meiðslanna var fimmtán mínútum bætt við leiktímann í fyrri hálfleiknum. Adana Demirspor vann leikinn að lokum, 4:2.
Ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsli Rúnars eru en hann hefur spilað alla leiki Alanyaspor síðan hann kom þangað á láni frá Arsenal í ágúst á síðasta ári.