Þýska stórveldið Bayern München vann mikilvægan útisigur á Werder Bremen, 2:1, í þýsku 1. deildinni í fótbolta í dag.
Þjóðverjarnir Serge Gnabry og Leroy Sané skoruðu mörk Bæjara en landi þeirra Niklas Schmidt skoraði mark Werder Bremen.
Bayern er í fyrsta sæti með 65 stig, fjórum meira en Dortmund sem á þó leik til góða. Á morgun getur Dortmund minnkað muninn í eitt stig þegar liðið mætir Wolfsburg á heimavelli.