Öskubuskuævintýri Osasuna

David Garcia, fyrirliði Osasuna, á blaðamannafundi fyrir úrslitaleikinn.
David Garcia, fyrirliði Osasuna, á blaðamannafundi fyrir úrslitaleikinn. AFP/Ander Gillenea

Öskubuskuævintýri Osasuna gæti náð hámarki í kvöld þegar liðið leikur í úrslitum spænsku bikarkeppninnar í fótbolta gegn Real Madrid.

Osasuna situr í 10. sæti spænsku 1. deildarinnar og á enn möguleika að komast í Sambandsdeild Evrópu á næsta tímabili. Ef liðið vinnur hinsvegar úrslitaleikinn í kvöld þá kemst það sjálfkrafa í Evrópudeildina, burtséð frá því hvar liðið endar í deildinni.

Óhætt er að segja að Real Madrid sé líklegra liðið í leiknum í kvöld en Madrid hefur unnið bikarinn 19 sinnum en Osasuna hefur aldrei unnið titilinn í 103 ára sögu félagsins.

David Garcia, fyrirliði Osasuna, sat fyrir svörum á blaðamannafundi fyrir leikinn og sagðist vera spenntur fyrir kvöldinu.

„Við erum ánægðir og stoltir að vera komnir hingað. Við höfum lagt mikið á okkur og viljum njóta leiksins og munum gefa allt í þennan leik. Við vitum að þetta verður erfiður leikur en við vitum líka að við getum skrifað söguna fyrir okkur og stuðningsmenn Osasuna. Við þurfum að spila með hjartanu og höfðinu, með hugrekki og gáfum.

Við berum mikla virðingu fyrir Real Madrid, þeir eru með frábært lið og frábæra leikmenn. Við eigum okkar vopn og höfum sýnt að við getum keppt við hvaða lið sem er. Við erum með frábæran hóp af leikmönnum og frábæran þjálfara sem hefur gefið okkur mikið sjálfstraust.“

Leikurinn fer fram á hlutlausum velli, heimavelli Sevilla, og verður flautað til leiks klukkan 20 í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert