Real Madrid er spænskur bikarmeistari í knattspyrnu í 20. sinn eftir sigur á Osasuna, 2:1, í úrslitaleiknum í Sevilla í kvöld.
Bæði mörk Madrídinga skoraði Brasilíumaðurinn Rodyrgo, það fyrri strax á annarri mínútu og það síðari á 70. mínútu. Í millitíðinni jafnaði Spánverjinn Lucas Torro metin fyrir Osasuna.
Þetta er tuttugasti bikarmeistaratitill Madrídinga en síðast unnu þeir tímabilið 2013-14. Bæði Barcelona, með 31, og Athletic Bilbao, með 23, eru með fleiri bikarmeistaratitla.