Sterkur útisigur Inter á Roma

Romelu Lukaku skoraði seinna mark Inter Mílanó í dag.
Romelu Lukaku skoraði seinna mark Inter Mílanó í dag. AFP/Vincenzo Pinto

Inter Mílanó sigraði Roma, 2:0, í ítölsku A-deild karla í knattspyrnu í höfuðborginni í dag. 

Bakvörðurinn Federico Dimarco kom Mílanómönnum yfir á 33. mínútu. Belginn Romelu Lukaku innsiglaði svo sigurinn á þeirri 74.

Inter er nú með 63 stig í fjórða sæti en Roma er í sjöunda sæti með 58 stig, en Meistaradeildarbaráttan á Ítalíu er æsispennandi þessa stundina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert