Jasper Cillesen, markvörður NEC Nijmegen og landsliðsmarkvörður Hollands, gerði sig sekan um slæm mistök í leik liðsins gegn Heerenveen í hollensku A-deildinni í fótbolta í gær.
Lokatölur leiksins urðu 3:2 Heerenveen í vil og ljóst að Cillesen svaf ekki mikið í nótt.
Cillesen hélt að hann væri að leyfa boltanum að rúlla framhjá markstönginni en á einhvern óskiljanlegan hátt leyfði hann boltanum að fara í markið.
Cillesen lét reiði sína bitna á markstönginni og skallaði hana af fullum krafti þegar hann hafði áttað sig á mistökunum.
Sjón er sögu ríkari.
Blunder van het seizoen van Jasper Cillessen? 😱#nechee pic.twitter.com/k1xfo36yjy
— ESPN NL (@ESPNnl) May 6, 2023