Dortmund vann í dag afar sannfærandi 6:0-heimasigur á Wolfsburg í þýsku 1. deildinni í fótbolta.
Karim Adeyemi, Sébastian Haller og Donyell Malen skoruðu allir í fyrri hálfleik og sáu til þess að staðan í leikhléi var 3:0.
Jude Bellingham bætti við fjórða markinu á 54. mínútu og Adeyemi gerði sitt annað mark og fimmta mark Dortmund á 59. mínútu.
Hann hefði getað fullkomnað þrennuna á 65. mínútu, en hitti ekki á markið úr víti. Það kom ekki að sök fyrir Dortmund, því Bellingham gerði sitt annað mark og sjötta mark Dortmund á 86. mínútu.
Dortmund er í öðru sæti með 64 stig, einu stigi á eftir meisturum Bayern München.