Fyrsta markið frá árinu 2011

Birkir Bjarnason var á skotskónum í dag.
Birkir Bjarnason var á skotskónum í dag. Ljósmynd/KSÍ

Viking og Strømsgodset skildu jöfn, 1:1, í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Birkir Bjarnason kom inn á sem varamaður hjá Viking á 76. mínútu og gerði jöfnunarmark liðsins á 89. mínútu.

Miðjumaðurinn, sem er leikjahæsti leikmaðurinn í sögu íslenska landsliðsins, gekk í raðir félagsins á dögunum. Hann lék með því á árunum 2006 til 2011 og var að skora sitt fyrsta mark í treyju liðsins síðan þá.

Patrik Sigurður Gunnarsson lék allan leikinn með Viking. Ari Leifsson var ekki í leikmannahópi Strømsgodset. 

Viking er í fimmta sæti deildarinnar með átta stig eftir fimm umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert