Lyngby tók á móti Midtjylland á heimavelli í neðri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Lyngby vann leikinn 2:1 og fékk gríðarlega mikilvæg þrjú stig í fallbaráttunni.
Freyr Alexandersson þjálfar lið Lyngby og með því spila þrír Íslendingar, þeir Alfreð Finnbogason, Sævar Atli Magnússon og Kolbeinn Birgir Finnsson.
Kolbeinn Birgir lagði einmitt upp opnunarmark leiksins þegar hann átti sendingu á Tochi Chukwuani sem skoraði á 2. mínútu leiksins. Stefan Gartenmann jafnaði metin fyrir Midtjylland á 13. mínútu. Þá var röðin komin að Sævari Atla Magnússyni sem skoraði sigurmark Lyngby á 32. mínútu leiksins.
Alfreð Finnbogason hefur verið frá keppni undanfarnar vikur vegna meiðsla og hefur nú misst af fimm síðustu leikjum Lyngby.
Lyngby er nú aðeins þremur stigum frá öruggu sæti í deildinni sem má teljast ótrúlegur árangur miðað við að liðið vann sinn fyrsta leik í sautjándu umferð deildarinnar.
Á sama tíma fór fram leikur Silkeborg og OB Odense í neðri hluta úrslitakeppninnar. Leiknum lauk með 1:0-útisigri OB Odense.
Stefán Teitur Þórðarson spilaði fyrstu 79. mínúturnar fyrir Silkeborg og Aron Elís Þrándarson kom inn á í liði OB Odense á 69. mínútu. Hvorugur lét að sér kveða í leiknum í dag.