Willum Þór Willumsson var enn á skotskónum í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar lið hans, Go Ahead Eagles, tók á móti Groningen.
Willum skoraði mark Go Ahead í jafnteflisleik, 1:1, þar sem hann jafnaði metin eftir hálftíma leik.
Hann er markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu með átta mörk og skoraði í öðrum leiknum í röð en fjögur markanna hafa komið í síðustu sjö leikjum.
Go Ahead Eagles er í ellefta sæti af átján liðum þegar þremur umferðum er ólokið og er hvorki í fallhættu né á liðið möguleika á að komast í umspil um Evrópusæti.