Juventus vann gríðarlega mikilvægan 2:0-útisigur á Atalanta þegar liðin mættust í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag.
Bæði lið eru í harðri baráttu um að komast í Meistaradeild Evrópu og er hart barist um hvert stig. Juventus komst með sigrinum í dag upp í 3. sæti deildarinnar með 64 stig en Atalanta situr í 6. sæti með 59 stig.
Leikurinn í dag var mjög fjörugur og sköpuðu bæði lið sér aragrúa af færum, en þrátt fyrir það var staðan markalaus í hálfleik.
Á 56. mínútu kom fyrsta mark leiksins en það var Englendingurinn Samuel Iling-Junior sem skoraði það. Boltinn datt fyrir hann inni í vítateig gestanna og Iling-Junior setti boltann í slána og inn. Iling-Junior varð í dag fyrsti Englendingurinn í þrjá áratugi til að byrja leik fyrir Juventus. Þá varð hann einnig aðeins þriðji Englendingurinn sem skorar fyrir félagið.
Liðsmenn Atalanta reyndu hvað þeir gátu til að jafna leikinn en þeim var refsað þegar átta mínútur voru liðnar á uppbótartíma leiksins. Þá komst Serbinn Dusan Vlahovic í góða stöðu fyrir utan teig Atalanta og skaut að marki. Boltinn söng í netinu og tryggði hann 2:0-sigur Juventus í þessum mikilvæga leik.