París SG vann í kvöld 3:1-útisigur á Troyes í frönsku 1. deildinni í fótbolta.
Kylian Mbappé skoraði fyrsta markið á 8. mínútu og Vitinha tvöfaldaði forskotið á 59. mínútu.
Xavier Chavalerin minnkaði muninn fyrir Troyes á 83. mínútu, en Fabián Ruiz átti lokaorðið fyrir París á 86. mínútu.
PSG er með 78 stig, sex stigum meira en Lens í öðru sæti, þegar fjórar umferðir eru eftir.