Fékk skilaboð frá mömmu fyrir leik

Jack Grealish í baráttunni við Dani Carvajal í kvöld.
Jack Grealish í baráttunni við Dani Carvajal í kvöld. AFP/Javier Soriano

„Þetta var æðislegt. Það var smá stress, en þú spilar fótbolta til að fá að spila svona leiki,“ sagði Jack Grealish, leikmaður Manchester City, í samtali við BT-sjónvarpsstöðina, eftir 1:1-jafntefli liðsins við Real Madrid á útivelli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

„Að spila svona leik á þessum velli er draumur að rætast. Þetta var samt erfiður leikur og þeir vörðust mjög vel. Ég var viss um að markið okkar kæmi með skoti utan teigs og þegar boltinn datt á Kevin var það ótrúlegt.“

Hann er brattur fyrir seinni leikinn á heimavelli, í einvígi sem er hnífjafnt. „Við höfum ekki tapað á heimavelli síðan fyrir heimsmeistaramótið. Við erum óstöðvandi þar,“ sagði hann.

Grealish fékk góð skilaboð frá móður sinni fyrir leik. „Ég fékk skilaboð frá mömmu fyrir leik og hún minnti mig á að þetta væru leikirnir sem alla dreymir um að spila. Allur heimurinn var að horfa og stundum þarftu að klípa þig til að vera viss um að þetta sé raunverulega að gerast,“ sagði Grealish.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert