Glæsilegt mark Arons (myndskeið)

Aron Bjarnason í leik með íslenska landsliðinu gegn því sænska …
Aron Bjarnason í leik með íslenska landsliðinu gegn því sænska í upphafi ársins. Ljósmynd/Alex Nicodim

Aron Bjarnason skoraði fyrsta mark Sirius þegar liðið mátti sætta sig við 3:4-tap fyrir Elfsborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi.

Mark Arons, hans fyrsta á tímabilinu, var sérlega glæsilegt.

Lék hann á tvo leikmenn Elfsborg áður en hann smellti boltanum upp í samskeytin fram hjá Hákoni Rafni Valdimarssyni.

Markið glæsilega má sjá hér:

Aron jafnaði metin í 1:1 en skömmu áður virtist Sveinn Aron Guðjohnsen hafa komið Elfsborg í forystu, en markið var síðar skráð sem sjálfsmark.

Sjálfsmarkið sem Sveinn Aron átti risa þátt í má sjá hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert