Knattspyrnukonurnar Pernille Harder og Magdalena Eriksson munu ganga til liðs við þýska stórliðið Bayern München í sumar.
Það er sænska fjölmiðlakonan Amanda Zaza og norska fjölmiðlakonan Christina Paulos sem greina frá þessu.
Harder, sem er þrítug, gekk til liðs við Chelsea frá Wolfsburg sumarið 2020 en hún er næst dýrasta knattspyrnukona sögunnar. Chelsea borgaði tæplega 300.000 evrur fyrir hana en það samsvarar rúmlega 45 milljónum íslenskra króna.
Eriksson gekk til liðs vð Chelsea frá Linköping árið 2017 og hefur hún verið fyrirliði Chelsea undanfarin ár.
Harder og Eriksson eru í sambúð en Harder á að baki 140 A-landsleiki fyrir Danmörku á meðan Eriksson á að baki 95 A-landsleiki fyrir Svíþjóð.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru allar samningsbundnar Bayern München.