Krefja Nantes um himinháar bætur vegna fráfalls Sala

Emiliano Sala lést í janúar árið 2019.
Emiliano Sala lést í janúar árið 2019. AFP

Velska knattspyrnufélagið Cardiff City hyggst krefja franska félagið Nantes um bætur sem nema allt að 200 milljónum punda í tengslum við fráfall argentínska framherjans Emiliano Sala.

Sala lést í flugslysi í Ermarsundi í janúar árið 2019 þegar hann var á leið til Cardiff frá Frakklandi eftir að Nantes samþykkti sölu á leikmanninum fyrir 15 milljónir punda.

Síðar sama ár fyrirskipaði Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, Cardiff að greiða Nantes fyrsta hluta upphæðarinnar, sem átti að greiða í þremur hlutum, fimm milljónir punda.

Cardiff áfrýjaði málinu til Alþjóðaíþróttadómstólsins í Genf í Sviss en dómstóllinn vísaði málinu frá.

Velska félagið áfrýjaði þá málinu til svissnesks sambandsdómstóls, sem úrskurðaði í dag að honum væri ekki unnt að snúa við ákvörðun Alþjóðaíþróttadómstólsins.

Cardiff er ekki af baki dottið og hyggst nú sækja Nantes til saka og krefjast á bilinu 20 til 200 milljóna punda af franska félaginu að því er Wales Online greinir frá.

Velska félagið fullyrðir í yfirlýsingu á heimasíðu sinni að Nantes beri fulla ábyrgð á andláti Sala þar sem starfsmaður á vegum franska félagsins hafi séð um skipulagningu á flugi Argentínumannsins.

Cardiff hafi orðið af háum fjárhæðum þar sem forsvarsmenn og fyrrverandi knattspyrnustjóri karlaliðsins, Neil Warnock, hafi verið þess fullvissir að Sala hefði með mörkum sínum haldið liðinu í ensku úrvalsdeildinni og þar með séð til þess að félagið ynni sér inn háar fjárhæðir.

20 milljónir punda myndu í því samhengi ná yfir kaupverðið og restin af fjárhæðinni tæki til þeirrar upphæðar sem Cardiff telur sig hafa orðið af síðan liðið féll úr úrvalsdeildinni, en liðið hefur leikið í ensku B-deildinni frá því að það féll um vorið 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert